Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
Senda þessa gellu heim
14.8.2009 | 14:51
Þessi Margrét Tryggvadóttir ætti náttúrulega bara að segja af sér og fara ofaní holu og koma ekkert upp úr henni á næstu árum. Þegar maður er að senda póst á einhvern einn mann, hvernig fer hann "óvart" til 8 annarra? Þetta er náttúrulega ofur tussuskapur og þessi þingflokkur er dauður því að það er ekki lengur hægt að treysta honum, hann stendur ekki heill og svo virðast vera manneskjur í honum sem kunna ekki að senda tölvupóst þannig guð minn almáttugur, hvernig á að treysta þeim á Alþingi Íslendinga?
Vonandi bara biður hún afsökunnar og dregur sig úr sviðsljósinu því hún er búin að gera fífl úr sjálfri sér og sínum þingflokk.
Formaður flokksins hættur því hann styður Þráinn í þessu máli og vill ekki sjá flokkinn sinn verða að þvílíku atlægi sem hann er að verða núna. Skil vel að Þráinn sé þessarri konu reiður, þvílíkt drasl sem hún er að klúðra málum svona illa, afsögn núna takk.
Þráinn segir sig úr þingflokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bestur :)
14.8.2009 | 14:28
Besti framherji í heimi áfram hjá Liverpool til 2014, það geta ekki talist annað en frábærar fréttir. Hann á þá inni tæp 100 mörk hjá félaginu sem er frábært og ég er viss um að hann á bara eftir að bæta sig.
Annars þá er spurning hvort að liðið hafi styrkt sig mikið frá því í fyrra þrátt fyrir ágætis leikmannakaup, ég held að miðjan hafi veikst við að missa Alonso sem var frábær á síðasta tímabili. :/
Torres hjá Liverpool til 2014 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sorpblaðamenska
13.8.2009 | 13:12
Reina saknar Alonso hjá Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
óskiljanlegt...
11.8.2009 | 16:13
Hvernig gengur það einusinni upp að menn ræni skartgripaverslun með hlutum uppá 8 milljarða? Þeir komust á brott með 43 gripi, hvernig geta 43 skartgripir verið 8 milljarðar? Það er ótrúlegt, engin skartgripur er það "fallegur" að maður færi að tíma hundruðum milljóna í hann. Ef mér skjátlast ekki þá er meðalverðmæti hlutanna 186.046.511 kr, er það ekki smá geðbilun? Hvernig getur svona verslun verið að halda viðskiptum sínum í þessu ástandi sem er í þjóðfélaginu?
Maður bara spyr...Annars nokkuð vel gert og minnir smá á hollywood mynd
Átta milljarða skartgriparán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
To belive or not to belive
11.8.2009 | 01:23
Nokkrar pælingar um trú svona beint úr hausnum á mér kl 1 um nótt, ákvað að kasta þeim hér inn.
Trú er ágæt, það væru aðeins flón sem myndu tala gegn henni sem mjög góðum hlut. Fólk virðist hafa þessa þörf á erfiðum tímum til þess að trúa á eitthvað æðra, getur maður sakast við fólk fyrir það? Ég held ekki, þegar allar leiðir virðast lokaðar og maður finnur enga leið eða lausn á málum er gott að geta sótt styrk í það að biðja til einhvers æðra valds um hjálp. Þetta hefur allaveganna hjálpað fólki síðustu árþúsundin og það eitt og sér finnst mér alveg nóg til þess að réttlæta trú sem slíka.
En eftir að hafa sagt þetta þá skulum við aðeins kíkja betur á okkar ágætu trú og hér ætla ég sérstaklega að fjalla um kristni og svo allskonar mismunandi söfnuði.
Það þarf vart að nefna allt það mannsfall sem ofsatrú hefur leitt af sér, trú veldur skiptingu í samfélaginu og skiptingu í heiminum og hefur því alltaf verið ákveðið deiluefni og menn hafa oft viljað þröngva sinni trú uppá aðrar þjóðir og annað fólk. Það er þó ekki kristin trú sem slík sem ég er að fara að gagnrýna, heldur er það trú á yfirnáttúrulega hluti yfir höfuð og vefengja tilvist guðs.
Hvaða sannanir höfum við fyrir tilvist guðs? Ekki hef ég séð eina einustu sönnun fyrir því að sá ágæti gæji sé til, biblían er náttúrulega frábært rit eins og flestar aðrar trúarbókmentir sem kennir kærleik og að koma vel fram við alla, frábært útaf fyrir sig. Það er kennt að þú eigir að koma vel fram við náungann sem og aðra og ef þú fylgir biblíunni nokkuð vel þá fáir þú himnavist eftir að þú deyrð, góður díll! Það sem málið er að maður sér marga eyða lífi sínu hálf lifandi, ekki borðandi þetta og hitt því það er ekki guði þóknanlegt, ekki gerandi þetta og hitt því það er ekki guði þóknanlegt...er þetta eitthvað líf? Þú lifir fyrir það eitt að ná sem bestum árangri í eftirlífinu sem þrátt fyrir allt er mjöööööööööööööööööööööööööööööög ólíklegt að sé einu sinni til? Afhverju ekki bara að lifa lífinu lifandi og ef það er eitthvað líf eftir dauðann og þú hefur almennt séð bara lifað lífinu sem góð manneskja þá hlýtur guð að hleypa þér inn í himnaríki, því nú spyr ég, hvaða miskunnsami guð sem vill EKKI taka af þér frjálsan vilja myndi setja upp dæmið svona: "annaðhvort trúirðu á mig og ferð nákvæmlega eftir biblíunni og á ákveðinn hátt fórnar ákveðnum hlutum úr lífi þínu fyrir trú þína...eeeða tekur hinn kostinn og færð að stikna í helvíti í einhvern tíma"...er þetta að vera miskunnsamur guð sem vill ekki neyða alla í að trúa á sig heldur gaf þeim fúsan og frjálsan vilja, sem þeir samt meiga varla nota sér því þá stikna þeir í helvíti...
Síðan verður að teljast nokkuð skoplegt að ef þeir sem frelsast og fá þessar þvílíku sjónir frá guði og spjalla við hann daglega og svona, það er rosalega gaman að þarna er oft fólk sem hefur átt erfitt í lífinu, fyrrum/núverandi dópistar, alkar og fólk sem hefur verið farið illa með. Ég er engan vegin að segja að það séu nærrum allir svona sem eru í þessum ágætu sértrúar/bókstafstrúar söfnuðum en það er einfaldlega staðreynd að þesskonar fólk er mjög móttækilegt fyrir því að gerast trúað og styður það þessa litlu staðhæfingu sem ég kom með í byrjun um að trúin er sterkust þar sem hennar er mest þörf, þar sem fólk VERÐUR að trúa að það sé eitthvað æðra til sem geti hjálpað því, ekki bara til að takast á við lífið eftir dauðann heldur líka lífið sem þau lifa þá þegar á því augnabliki.
Er einhver ástæða fyrir því, önnur en að þetta fólk eigi erfitt að Guð virðist "opinberast" því meira? Afhverju opinberast hann bara sumum sem eiga bágt en ekki öllum? Elskar hann ekki öll börn sín jafn mikið?
Síðan er annað sem mér finnst ákaflega skoplegt. Maður heyrir Mormóna, 7 dags aðventista og ýmsa sértrúarsöfnuði boða einskonar dómsdag, jesús kemur og það verður mikil dýrð, aðalega samt fyrir þá sem trúa á þá, aðrir fá að stikna í helvíti ef ég skil þetta rétt...Síðan skulum við ekki gleyma þessu með náungakærleikann sem að biblían kennir...Með þetta 2 í huga skulum við vinda okkur að næsta punkti.
Ef ÉG persónulega sem afar ótrúaður maður myndi fá guð í heimsókn, hann myndi segja mér að aðeins þeir sem tryðu á sig og helguðu líf sitt sér myndu komast til himna, aðrir vera eftir og stikna með djöflinum sjálfum, hvað myndi ég gera? Það fyrsta sem ég myndi gera væri að fara beint út, dreifa boðskapnum og ég myndi ekki getað sofið fyrr en ALLIR sem ég þekkti væru búnir að snúast til trúar og ég myndi ekki getað haldið áfram að lifa lífinu fyrr en ég væri búinn að fara að öllum sem ég gæti og látið þá trúa, því ef ég hefði vitneskju (eins og þetta ágæta fólk virðist hafa) um að þetta væri að fara að gerast, hvernig er ég þá að sýna náungakærleik með því að einfaldlega segja "well ef hann/hún trúir ekki, hennar/hans vandamál, ég trúi og þessvegna fæ ég að fara til himna". Hvaða djók er þetta? Lítill náungakærleikur myndi ég segja hjá hverjum þeim sem trúir þessu öllu en er samt ekki hlaupandi dag eftir dag hús úr húsi að bjarga fólki (ég veit vel að þessi trúfélög eru mjög aktívt að reyna að fá fólk til sín en ég væri í mun meira "panici" ef ég hefði þessa vitneskju).
Fólk verst þessu með því að segja "tjahh, fólk hefur frjálsan vilja og við viljum ekki neyða trú uppá fól. Hvaða vitleysa er þetta? Samkvæmt ykkur á þetta fólk yfir höfði sér það að fara til helvítis sem er sirka bát eins slæmt eins og hægt er, samt er verið að verja sig með því að fólk eigi að hafa frjálsan vilja? Ef það er manneskja inní brennandi húsi og þú ert slökkvuliðsmaðurinn sem kemur og bjargar manneskjunni og manneskjan segir "ég vil bara brenna hérna inni, minn vilji" mynduð þið þá sem slökkvuliðsmaðurinn segja bara "well ok, þú hefur frjálsan vilja" og fara út og kalla á hina slökkvuliðsmennina "neeei þessi vill ekki fara út, bara hennar/hans frjálsi vilji"...nei ég trúi ekki að ein einasta manneskja myndi gera það en samt nota menn þessi sömu rök fyrir því að vera ekki að reyna af mun meiri krafti að bjarga fólki frá helvíti.
Nú slæ ég botninn í þetta, vonandi að hugmyndir mínar hafi velt einhverjum steinum í hausnum á fólki. Minni alla þó á að þetta eru sakleysislegar pælingar og ég eins og aðrir er bara mannlegur og gæti því vel verið (þótt ég trúi því ekki núna) að einn daginn þá munu hinir trúuðu horfa á mig af himnum ofan þar sem ég stikna þar niðri og segja "face, sagði þér að þú ættir að trúa!"
kv. Unknown Fact
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Klassík Terry!!!
11.8.2009 | 00:06
Menn virðast aldrei telja Liverpool sem svona "aðal" contender en við erum búnir að styrkja liðið okkar örlítið, þó að Alonso sé farinn eftir sitt lang besta tímabil með okkur.
Ég bara vil bíða og sjá hvernig þetta fer en það eer nokkuð ljóst að ég spái því að þetta verði loks okkar tímabil, top 4 í meistaradeild og vinnum ensku
ÁFRAM LIVERPOOL :)
John Terry: Verður spennandi toppbarátta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)